top of page

Verðskrá Agnes Skúla 2022

English version

​Allar myndir eru afhentar í lit og svarthvítu bæði í vef- og prentupplausn. Agnes Skúla velur og fullvinnur bestu myndirnar úr myndatökunni. Myndirnar eru í albúmi á heimasvæði viðskiptavina. Viðskiptavinir fá lykilorð á albúmið sitt og geta skoðað og valið myndirnar sem þeir vilja fá.   Myndirnar sem viðskiptavinur velur eru afhentar á usb lykli í fallegri gjafaöskju og ein útprentuð mynd fylgir með. Aukamynd kostar 2.500 kr.  

Vönduð albúm og prentvörur sjá hér

​Ungbarnamyndataka:

12 fullunnar myndir verð: 55.000 kr. Val úr 20 fullunum myndum

Systkini og/eða foreldrar með ungbarni 3 aukamyndir:  5.000 kr.  

Tvíburamyndataka kostar 10.000 aukalega og 5 myndir bætast við. Ef meðgöngumyndataka er pöntuð með ungbarnamyndatöku er gefinn 12.000 kr. afsláttur af heildarpakkanum. (sjá upplýsingar um meðgöngumyndatöku hér  fyrir neðan).

Upplýsingar vegna ungbarnamyndatöku sjá hér

 

Barna-,  fermingar-, fjölskyldu- eða útskriftarmyndataka:

Fyrir börn eldri en 6 mánaða

12 fullunnar myndir verð: 40.000 kr. Val úr 20 fullunnum myndum. Fjölskylda með barni, fermingarbarni eða útskriftarnema 3 aukamyndir: 5.000 kr. Tvíburamyndataka 20 myndir: 50.000.  Myndatakan fer fram úti eða inni eftir vali viðskiptavinar.  Úti og innimyndataka 5 aukamyndir: 10.000 kr.  Ath. geri verðtilboð ef um stóra fjölskyldu er að ræða (fleiri en 6 manns).

 

Meðgöngumyndataka:

8 fullunnar myndir verð: 40.000 kr.  Val úr 16 myndum. . Fatnað, annan en undirföt, er hægt að fá lánaðan á staðnum. Myndatakan er stíliseruð af Agnesi Skúla. Maki er velkominn með en ef óskað er eftir að mynda börn með verðandi móður er 5.000 kr aukagjald og 3 aukamyndir fylgja með. Ef meðgöngumyndataka er pöntuð með ungbarnamyndatöku er gefinn 12.000 kr. afsláttur af pakkanum. Nánari upplýsingar vegna meðgöngumyndatöku er hér

 

Kökufjör – Cake smash - myndataka í tilefni af 1 árs afmæli:

12 fullunnar myndir verð: 40.000. Val  úr 20 myndum. Allar skreytingar, fatnaður fyrir kökufjörið og kaka eru innifaldar í verði, myndatakan er stíliseruð af Agnesi Skúla. Ef óskað er eftir gluten-, mjólkur- eða sykurlausri köku sér viðskiptavinur um að skaffa hana, ekki er veittur afsláttur þó viðskiptavinur ákveði að koma með sína eigin köku. Upplýsingar vegna kökufjörs sjá hér

Athugið að verðskrá getur breyst án fyrirvara. 

 

bottom of page