top of page

Skilmálar: Welcome
Skilmálar: Inner_about

Skilmálar

VINSAMLEGST ATHUGIÐ EFTIRFARANDI:

    Skilmálar  

​English version here.

  1. Allur höfundaréttur að ljósmyndum er í eigu Agnesar H. Skúladóttur

  2. Um höfundarrétt gilda höfundarréttarlög nr. 73/1972.

  3. Afhending ljósmynda til viðskiptavinar felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti né veitir hún heimild til breytinga á ljósmyndum.

  4. 20 bestu myndir úr myndatöku eru settar í læst albúm á vefsíðunni www.agnesskula.is. Viðskiptavinur fær senda slóð og lykilorð á albúmið og hefur nokkra daga til að skoða og velja myndirnar.

  5. Myndvinnsla og val á myndum er alfarið í höndum Agnesar Skúla. Agnes Skúla afhendir aldrei óunnar myndir. 

  6. Myndir afhentar fyrir prent eru 30 cm á lengri kantinn og 300dpi sem dugar til prentunar á flestum stærðum mynda. Ef óskað er eftir prentun á mjög stórum myndum, vinsamlegast hafið samband og viðskiptavinur fær myndina í ennþá betri gæðum honum að kostnaðarlausu. Agnes Skúla tekur ekki ábyrgð á gæðum prentunar ef prentað er annars staðar en hjá Agnesi Skúla.

  7. Myndir fyrir samfélagsmiðla eru 2048 pxl á lengri kantinn og 72 dpi. Velkomið er að birta myndir fyrir vef á samfélagsmiðlum. 

  8. Agnes Skúla merkir myndir ekki með lógó en óskar eftir að sett sé “tag” frá Instagram eða facebook                           📸 @agnesskulaphotography  þegar myndir eru birtar á samfélagsmiðlum.

  9. Óheimilt er að  skera (croppa) og breyta myndum (t.d. fyrir instagram).

  10. Myndirnar eru til einkanota og ekki leyfilegt að nota þær í auglýsingaskyni nema samið sé sérstaklega um slíkt.

  11. Agnes Skúla áskilur sér rétt til að birta myndir, eina eða fleiri, á samfélagsmiðlum og á vefsíðu sinni nema um annað sé samið sérstaklega.

  12. Myndirnar eru afhentar á usb lykli, ef myndirnar glatast hjá viðskiptavini er hægt að fá myndirnar sendar í gegnum hlekk.  Agnes Skúla ráðleggur öllum að hlaða myndum af lykli í tölvu eða geyma á öruggum stað. Agnes Skúla ekki ábyrgð á myndum sem geymdar eru á UBS lykli til lengri tíma. 

  13. Myndirnar eru geymdar í 2 ár. Eftir það er þeim eytt.

  14. Eftir afhendingu mynda er varðveisla þeirra alfarið á ábyrgð viðskiptavinar. 

  15. Greiðsla fyrir myndatökuna er skv. verðskrá sem má sjá á heimasíðu Agnesar Skúla og skal greiðsla fara fram áður en myndirnar eru afhentar viðskiptavini.

  16. Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá Agnesar Skúla sem sjá má á heimsíðunni.   Verðskrá getur breyst án fyrirvara.

  17. Agnes Skúla sendir viðskiptavini hlekk fyrir samþykki og viðskiptavinur samþykkir skilmála þessa áður en myndatakan fer fram.  Foreldrar/forráðamenn barna undir 18 ára samþykkja fyrir þeirra hönd.

  18. Brot á höfundarrétti og skilmálum þessum varða við höfundarréttarlög og áskilur Agnes H. Skúladóttir sér allan rétt vegna slíkra brota.

  • Facebook
  • Instagram

© 2025 - Agnes Heiða Skúladóttir

bottom of page