ÁLFkonur
„Stefnumót við fortíðina”
"A rendezvous with the past”
Það er áralöng hefð hjá okkur ÁLFkonum að setja upp nýja ljósmyndasýningu í Lystigarðinum í sumarbyrjun. Fyrir hverja sýningu höfum við ákveðið þema til að vinna eftir. Að þessu sinni var ákveðið að helga sýninguna 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands sem er á þessu ári. Stofnfundurinn var haldinn 1926 og mættu til hans 18 ljósmyndarar sem flestir störfuðu í Reykjavík. Það er gaman að geta þess að í þeim hópi voru 3 konur.
Upp kom sú hugmynd að vinna með 100 ára gamlar ljósmyndir frá Akureyri sem varðveittar eru á Minjasafninu. Við unnum hver í sínu lagi og reyndum að finna staðinn sem ljósmyndarinn hafði hugsanlega staðið á þegar hann tók myndina. Þegar staðurinn var fundinn stilltum við okkur upp með myndavélarnar og smelltum af.
Mikið hefur breyst í bænum á 100 árum og var oft á tíðum mjög erfitt að reyna ná góðum myndum þar sem byggingar eða trjágróður skyggðu á allt útsýni. Það kom því skemmtilega á óvart að sjá að þó að mikið hafi breyst þá standa enn uppi hús sem sjá má á þessum gömlu myndum.
For many years now it has been a tradition for ÁLFkonur to set up a new photography exhibition at the Akureyri Botanic Garden at the beginning of each summer. For each exhibition we decide on a theme to work with. This summer we decided to dedicate the exhibition to the 100th year anniversary of the Icelandic Professional Photographers Association. The founding meeting was held 1926 and was attended by 18 photographers, most of whom worked in Reykjavík. It's interesting to note that 3 of the members were women.
We came up with the idea to work with photographs from Akureyri taken 100 years ago, preserved at The Akureyri Museum (Minjasafnið). The group worked separately and tried to find the exact location of the photographers who took the original pictures. When we thought we were standing at the right spot, we pressed the shutter.
The town has changed a lot in 100 years and it often made it difficult to get good photos as buildings or trees obscured the entire view. It was a pleasant surprise to see that although much has changed, some of the houses that can be seen in the old photos are still standing.
Við bjóðum ykkur vel að njóta og vonum að þið hafið gaman
af því að fara á þetta „Stefnumót við fortíðina” með okkur.
We hope you'll enjoy the exhibition and our “Rendezvous with the Past”.
ÁLFkonur
Um ÁLFkonur/About ÁLFkonur here
Álkonur þakka Minjasafninu á Akureyri og Gunnari Geir Vigfússyni fyrir leyfi til notkunar á gömlu myndunum .


Ljósmyndari/Photographer: Vigfús Sigurgeirsson 1921-1926/Agnes H. Skúladóttir 2026
Myndin er tekin neðst í Kaupvangsstræti sem oft er nefnt „Listagilið“. Húsið fyrir miðju heitir Hamborg og var byggt árið 1909 af Jóhannesi Þorsteinssyni. Jóhannes stofnsetti verslunina Hamborg í húsinu og starfrækti hana til dánardægurs árið 1920. Síðan hafa hinar ýmsu verslanir verið starfræktar í húsinu. Á efri hæð var íbúð en eru nú skrifstofur. Húsið vinstra megin á nýju myndinni er hið sögufræga KEA hús sem var byggt árið 1930 fyrir Kaupfélag Eyfirðinga. Húsið hýsti höfuðstöðvar félagsins í 76 ár. Vigfús Sigurgeirsson var afabróðir Agnesar H. Skúladóttur
The pictures are taken at the bottom of Kaupvangsstræti sometimes known as Akureyri’s “Art Street”. The house in the middle is called Hamburg and was built in 1909 by Jóhannes Þorsteinsson. Jóhannes founded the Hamburg store in the house and operated it until his death in 1920. Since then, various stores have operated in the house. The upper floor was an apartment but is now an office space. The house on the left on the new photo is the historic KEA house which was built in 1930 for The Eyjafjörður Co-operative. The company's headquarters was in the house for 76 years. Vigfús Sigurgeirsson was Agnes H. Skúladóttir's great-uncle.


Ljósmyndari / Photographer - Hallgrímur Einarsson/Berglind H. Helgadóttir 2026
Á myndinni má sjá Torfunefsbryggju teygja sig í sjó fram fyrir neðan Listagilið í miðbænum. Myndin er tekin árið 1907 en þá hafði bryggjan verið um tvö ár í smíðum. Það er sennilegt að bryggjan hafi í gegnum árin tekið einhverjum breytingum. Í byrjun árs 2023 var ráðist í þá framkvæmd að stækka svæðið og lengja viðlegukantinn svo að minni skemmtiferðaskip geti lagst þar að. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi á nýja hafnarsvæðinu. Endurnýjuð Torfunefsbryggja var formlega tekin í notkun 25. júní 2025.
The photo shows Torfunefsbryggja stretching out into the sea below Listagilið in the city center. The photo was taken in 1907, when the pier had been under construction for about two years. It is likely that the pier has undergone several changes over the years. In early 2023, work began on expanding the area and extending the mooring quay so that smaller cruise ships can dock there. A variety of activities are expected in the new port area. The renovated pier was officially opened on June 25th 2025. The color photo shows the Coast Guard vessel Þór at Torfunefsbryggja on May 22nd 2026


Ljósmyndari/Photographer: Hallgrímur Einarsson/Guðný Pálína Sæmundsdóttir 2026
Mynd tekin/photo taken 1928-1930. Strandgata 37 er húsið lengst til hægri á gömlu myndinni. Þetta var timburhús, reist árið 1899. Þar var rekin brauðgerð til ársins 1931 þegar húsið brann. Þá var byggt hús úr steinsteypu sem var upphaflega ein hæð, en efri hæðarnar þrjár komu síðar. Húsið við hliðina, Strandgata 35, var reist árið 1888 af Jakobi V. Havsteen en hann bjó ásamt fjölskyldu sinni í húsinu en rak þar einnig verslun. Jakob var umsvifamikill athafnamaður á sinni tíð og auk verslunarreksturs rak hann útgerð og fiskvinnslu, bakarí og sláturhús svo eitthvað sé nefnt.
Strandgata 37 is the building farthest to the right in the old photograph. It was a wooden house built in 1899. A bakery operated there until 1931, when the house burned down. A concrete building was then constructed on the site, originally consisting of only one floor, with the three upper stories added later. The neighboring building, Strandgata 35, was built in 1888 by Jakob V. Havsteen, who lived there with his family and also operated a shop in the building. Jakob was a prominent entrepreneur of his time and, in addition to running the shop, he was involved in shipping and fish processing, as well as operating a bakery and a slaughterhouse, to name just a few of his ventures. Heimildir/Sources: Heimasíða Minjasafnsins á Akureyri og pistlar Arnórs Blika Hallmundssonar um hús á Akureyri: arnorbl.blog.is


Ljósmyndari/Photographer: Hallgrímur Einarsson 1878-1948/Gunnlaug E. Friðriksdóttir 2026
Höepfnershús, Hafnarstræti 20 á Akureyri, er timburhús byggt árið 1911. Það er kennt við Carl J. Höepfner stórkaupmann, fyrsta eiganda hússins, og þar var í marga áratugi bæði íbúðar- og verslunarhúsnæði. Verslunin var oft kölluð „Hvíta búðin“ í auglýsingum og manna á milli enda máluð í ljósum litum að innan sem utan og lýst upp með gasluktum, sem var sjaldgæft á þessum tíma. Ljósmyndin hans Hallgríms er tekin á þriðja áratug 20. aldar en nýja myndin var gerð 23. apríl 2026. Þann dag stóð ég með myndavélina á þrífæti fyrir framan Höepfnershús í ríflega 100 mínútur og safnaði augnablikum sem ég raðaði svo saman í líflega og litríka "sögu" af fólki og ferfætlingum sem áttu leið um Innbæinn á sumardaginn fyrsta.
Höepfner House, Hafnarstræti 20 in Akureyri, is a wooden house built in 1911. It takes its name from the merchant Carl J. Höepfner, the first owner of the house, and for many decades it was both a residential and commercial property. It was often called “The White Shop” in advertisements and by locals, as it was painted in light colors inside and out and lit by gas lanterns, which was rare at the time. Hallgrímur's photograph was taken in the 1920s, but the new photo was taken on April 23rd 2026. For over 100 minutes I stood with the camera on a tripod in front of Höepfner House, collecting moments I later arranged into a lively and colorful "story" of people and pets going through Innbærinn on the first day of summer in Iceland.


Ljósmyndari/Photographer: Hallgrímur Einarsson 01.07.1926/Hafdís G. Pálsdóttir April 28th 2026
Myndin er tekin neðan húsanna við Hafnarstræti þar sem nú hefur orðið mikið breyting á landslagi.
Hafnarstræti 53.
Gamli Barnaskólinn er byggður árið 1900 og var skólahald í húsinu frá 1900-1930. Jafnframt var búið í húsinu fram undir 1980. Frá endurbótum 2007 hefur húsið verið nýtt sem skrifstofuhúsnæði.
Hafnarstræti 57.
Samkomuhúsið/Leikhúsið er byggt árið 1906. Húsið stendur hátt og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Hafdís G. Pálsdóttir tók nýju myndina 28. apríl 2026.The photo was taken from below the houses on Hafnarstræti, where the landscape has now changed significantly.
Hafnarstræti 53.
The old primary school was built in 1900 and was used as a school from 1900-1930. The building was also inhabited until 1980. Since renovations in 2007, the building has been used as office space.
Hafnarstræti 57.
The community hall/theater, built in 1906. The building stands tall and is one of the town's main landmarks.


Ljósmyndari/Photographer: Hallgrímur Einarsson 1915 – 1925/Halla S. Gunnlaugsdóttir 2026
Strandgata 45.
Í fjörunni framan við Strandgötu léku foreldrar mínir sér þegar þau voru börn og oft sögðu þau okkur systkinunum sögur af lífinu þar. Þarna var góð fjara til að leika sér og hún var einnig lægi fyrir sjóflugvélar og smábáta. Þegar Pollurinn var ísi lagður léku stórir og smáir sér á skautum. Enn leikur fólk sér á Pollinum en bílar aka á uppfyllingu þar sem fjaran var.
Beach 1915 - 1925
On this beach my parents used to play when they were children and often told me and my siblings stories of their childhood games. This was a very good beach to play and it was also a port for small boats and sea aeroplanes. When Pollurinn was frozen adults and children used to go skating. People still play on Pollurinn but cars drive along the street on a landfill where the beach used to be.
Strandgata 2026
Hjálmar Gunnarsson leikur sér á bretti á Pollinum
Hjálmar Gunnarsson playing on a paddleboard


Ljósmyndari/photographer: Jón Sigurðsson og Vigfús Sigurgeirsson 1924 – 1928/Helga H. Gunnlaugsdóttir 2026
Kaupstaður. 1924 – 1928
Erlent skemmtiferðaskip siglir inn á Pollinn. Akureyri, Oddeyrin, Kræklingahlíð og Krossanes í bakgrunni.
A Foreign Cruiser Sailing into Pollurinn Harbour. Akureyri, Oddeyri, Kræklingahlíð and Krossanes in the Background.
2026
Skemmtiferðaskip við bryggju á Akureyri.
A Cruiser Docked at Akureyri Harbour.


Ljósmyndari/Photographer: Hallgrímur Einarsson 1907-1911/Hrefna Harðardóttir 2026
Grófargil var samastaður verksmiðja Kaupfélags Eyfirðinga Akureyri. Sláturhús var hið fyrsta í röðinni, byggt 1907 í Kaupvangsstræti 6. Síðan kom mjólkurbú árið 1928, verslun, bögglageymsla og árið 2007 kom veitingarstaðurinn FriðrikV en hýsir í dag veitingastaðinn RUB 23 og er friðuð bygging í miðbænum.
To learn the history of Kaupvangsstræti, Akureyri's Art Street, we first need to look into the foundation of KEA (Eyjafjörður Co-operative Society) – an organisation of farmers from the district founded in late 19th Century which was a key influence in the development of Akureyri during the 20th Century.
KEA had its headquarters on Kaupvangsstræti and thus the street became lined with industry and commerce which spanned from slaughterhouse, meat processing, butcher shop, dairies, corn mills to sweets and soft drink factories, and shops, becoming the bustling heart of the town.


Ljósmyndari/Photopgrapher: Jón Sigurðsson og Vigfús Sigurgeirsson/Inga Dagný Eydal 2026
Sá sem stendur á miðju „Kaupfélagshorninu” þennan snjóþunga dag er Ingimar Eydal, kennari og ritstjóri.
Á nýrri myndinni er langafabarn hans og alnafni, Ingimar Eydal. Árið er 1929 en þá var stórhýsi KEA í byggingu (vígt 1930). Á myndinni má sjá verslunina Hamborg í Hafnarstræti 94 sem byggt var 1909 og verslunarhúsið að Hafnarstræti 92 sem byggt var árið 1900 og hýsir nú veitingastaðinn Bautann.
The person standing at the center of “Kaupfélagshornið/Co-op corner” on this snowy day is Ingimar Eydal, teacher and editor, born in 1873. In the newer photograph is his great-grandchild and namesake, Ingimar Eydal.The year is 1929, when the large KEA (Co-op of Akureyri) building was under construction (inaugurated in 1930). In the picture, you can see the Hamburg shop at Hafnarstræti 94, built in 1909, and the commercial building at Hafnarstræti 92, built in 1900, which now houses the restaurant Bautinn.
Avenir Light is a clean and stylish font favored by designers. It's easy on the eyes and a great go-to font for titles, paragraphs & more.


Ljósmyndari/Photographer: Hallgrímur Einarsson/Kristjana Agnarsdóttir 2026
Gamli spítalinn, „Gudmanns Minde", Aðalstræti 14, sem Eggert Johnsen læknir reisti árið 1836. Friðrik Gudmann kaupmaður keypti húsið að áeggjan Bernhards Steincke og gaf bænum það til notkunar fyrir sjúka. Var spítalinn vígður við hátíðlega athöfn 7. Júlí 1874 í viðurvist landshöfðingja og annars stórmennis. Fjær er Hótel Akureyri, þá Berlín, verslunarhús Sigvalda og Jóhannesar Þorsteinssona, og á horni Aðalstrætis og Lækjargötu er hús séra Geirs Sæmundssonar.
The Old Hospital, "Gudmanns Minde” stands at Aðalstræti 14. Doctor Eggert Johnsen built it in the year 1836. When urged by Bernhard Steinke, the merchant Friðrik Gudmann, bought the house and gave it to Akureyri town to use it for the sick. The hospital was consecrated at a ceremonial event on the 7th of July 1874 in the presence of the governor and some celebs. Behind Gudmanns Minde is Akureyri Hotel and then “Berlin”, a small shopping mall owned by the brothers Sigvaldi and Jóhannes Thorsteinssons. On the corner of Main Street and Lækjargil is the house of the priest Geir Sæmundsson


Ljósmyndari/photgrapher: Hallgrímur Einarsson 1921-1922/Lilja Guðmundsdóttir 2026
Glerár rafstöðin I er lítil vatnsaflsvirkjun á Akureyri við ána Glerá. Hún var upphaflega opnuð árið 1922 og endurbyggð árið 2005. Fyrsta rafstöðin hóf starfsemi árið 1922 og markaði upphaf raforkuframleiðslu í Glerá í Akureyri. Núverandi Glerár rafstöð er endurbyggð útgáfa af eldri rafstöðinni. Gömlu rafstöðinni var lokað árið 1960, en síðar var ný rafstöð byggð á svæðinu.
The Glerá Power Plant I is a small hydroelectric power plant in Akureyri by the river Glerá. It was originally opened in 1922 and rebuilt in 2005.The first power plant began operations in 1922 and marked the beginning of electricity production at Glerá in Akureyri. The current Glerá Power Plant is a rebuilt version of the older power plant. The old power plant was shut down in 1960, but later a new power plant was built in the area.




Ljósmyndari/photographer: Jón Sigurðsson og Vigfús Sigurgeirsson/Linda Ólafsdóttir 2026
Ljósmyndari/photographer: Linda Ólafsdóttir
Kaupstaður. 1924 - 1927
Miðbærinn, Torfunefsbryggja og Oddeyrin
Horft út Eyjafjörð.
Myndin er tekin við Eyrarlandsveg.
Town center, Torfunef pier and OddeyriLooking out Eyjafjörður. Picture taken at Eyrarlandsvegur, Akureyri. 2026
Picture taken with a drone just above Eyrarlandsvegur
Ljósmyndari/Photographer: Hallgrímur Einarsson 1928 – 1930/Margrét Elfa Jónsdóttir 2026
Sigurhæðir við Eyrarlandsveg 3 er í forgrunni myndarinnar en Matthías Jochumsson prestur og skáld byggði húsið 1903 og bjó þar til dánardags. Þar er núna rekið safn um Matthías. Horft er suður Hafnarstræti og glöggt má sjá hina upphaflegu Akureyri sem bærinn dregur nafn sitt af. Þetta útsýni er nú hulið íbúða- og hótelbyggingum.
Sigurhæðir at Eyrarlandsvegur 3 is in the foreground of the picture. The priest and poet Matthías Jochumsson built the house in 1903 and lived there until the day he died. A museum about Matthías is now operated there. The view looks south along Hafnarstræti, and you can clearly see the original Akureyri, the sandbank from which the town takes it's name. This view is now obscured by apartment and hotel buildings.
