top of page

Upplýsingar vegna fjölskyldumyndatöku.
 

  • Myndatakan fer fram í stúdíói Agnesar Skúla og/eða úti eftir óskum viðskiptavina. 

  • Stúdíó Agnesar Skúla er að Furuvöllum 13, 2 hæð til hægri þegar komið er upp stigann.  Útimyndataka fer fram í Lystigarðinum eða annars staðar eftir óskum viðskiptavinar.

  • Myndatakan tekur u.þ.b. 30 mínútur

  • Myndatakan er fyrir að hámarki 6 fjölskyldumeðlimi en ég geri tilboð ef stærri fjölskyldur koma í myndatökuna. 

  • Vinsamlegast athugið að ég mynda stórar fjölskyldur úti.

  • Vinsamlegast hreinsið gamalt naglalakk af nöglum, passið að ekkert krot sé á höndum og að hár sé hreint.

  • Vinsamlegast passið að föt séu hrein og straujuð og skór hreinir. Ekki er æskilegt að mynda börn/fullorðna á sokkunum en það er í lagi að vera berfættur

  • Vinsamlegast hafið í huga að  fallegast er að allir fjölskyldumeðlimir séu í svipuðum litatónum, það kemur best út á ljósmyndum og eldist best. Best er að velja einlitan fatnað og hafa í huga að fatnaður með litríkum myndum kemur ekki vel út á ljósmyndum. Spariföt eru að sjálfsögðu leyfileg. 

  • Ekki er leyfilegt að koma með veikt barn í myndatöku. Ef barn er með hita eða órólegt vegna veikinda vinsamlegast hafið samband við Agnesi Skúla og bókið nýjan tíma fyrir myndatökuna.

  • Vinsamlegast kynnið ykkur verðskrá og skilmála áður en myndatakan fer fram.Vinsamlegast athugið að skilmála þarf að samþykkja rafrænt áður en myndatakan fer fram. Foreldrar/forráðamenn samþykkja fyrir hönd barna yngri en 18 ára. Allir fjölskyldumeðlimir þurfa að gefa samþykki sitt.

  • Vinsamlegast hafið samband ef einhverjar spurningar vakna.

Með kveðju,

Agnes Skúla

bottom of page